|
Dagsetning
23. febrúar 2012
|
05.10.2007 14:57:23 / Sunna
Heyrið! Ég er að pæla í að fara í smá pásu á þessari síðu, ég blogga allt of lítið til að vera með tvær síðu
Fylgist með á www.blog.central.is/sunharp 
Samt sem áður, nýtt myndband hér til hliðar 
»
22.09.2007 10:04:25 / Sunna
Það var mikið! Ég hef nú ekki verið dugleg að blogga undanfarið, ég hef meira verið að gera myndbönd ásamt Karen og Hörpu Við vorum að gera nýtt myndband í gær en það varð nánast 12 mínútur þannig að ég veit ekki hvort það kemur inn á netið En í því má sjá marga skemmtilega karaktera
Skólinn hefur farið vel af stað, í gær var snilldar dagur Kennararnir voru á einhverju haustþingi þannig að það var óhefðbundinn skóladagur Við byrjuðum á því að fara í línudans með Völlu :'D Gaman að því Eftir það fór svo 7.-10. bekkur í nokkrum hópum í starfskynningar í fyrirtæki Ég var með Hörpu, Líneyju og Stebba P. í hóp Við byrjuðum á því að fara í Pharm Artica og vorum þar að sprauta einhverjum frunsuáburði í glös og vigta töflur ofan í glös. Næst fórum við á Grenilund þar sem við skoðuðum okkur um, prófuðum hjólastól og lyftara, lögðum á borð og ég las fyrir gamla fólkið Svo fórum við í leikskólann Þar tókum við þátt í söngstund og borðuðum svo með þeim Lítil börn eru svo miklar dúllur Síðasti staðurinn var svo Jónsabúð þar sem við afgreiddum aðeins, röðuðum í hillurnar og fræddumst aðeins um staðinn Síðan fórum við bara heim Þetta var fjör
Harpa, Björn og Sigríður Edda gista hérna þangað til á þriðjudag því Fjóla og Ingólfur, og reyndar Sigga & Galdi og Ingvar & Inga María, eru að fara til Liverpool á leik Það er nú meira búið að gerast því síðustu helgi komu Vala og Kristinn og litla stelpan hingað norður Það voru teknar margar myndir af þeim litlu frænkum Á miðvikudaginn var svo slátur Við Harpa fórum með alla krakkana á róluvöllinn sem var mikið fjör Lokahóf yngri flokka Magna var líka 10. september og allir fengu fjóra bíómiða, Magnahárband og verðlaunapening Svo næstu helgi þá verður skírnin hjá Völu og öll hele familien fer til Reykjavíkur og gistir í einhverjum tveimur eða þremur íbúðum Það verður GAMAN!  Gaman gaman Krúttlegar :] Yngstu börnin og foreldrar Stolt amma 
Það er nóg að gera!
Mánudagur: Skóli til hálf þrjú. Píanótími í bænum frá fjögur til fimm. Þriðjudagur: Skóli til korter yfir þrjú. Frjálsíþróttaæfing frá korter í fimm til korter í sex. Ef til vill kvennafótboltaæfing frá átta til níu. Miðvikudagur: Skóli til fjögur. Líklega verður félagsmiðstöð á þessum dögum frá átta til tíu. Fimmtudagur: Skóli til hálf þrjú. Fótboltaæfing frá korter í fimm til korter í sex. Þess má geta að ég þarf alltaf að sleppa fótboltaæfingu á mánudögum til að fara í bæinn Föstudagur: Skóli til tíu mínútur yfir eitt. Ég þarf auðvitað að spila á píanóið á hverjum degi og læra nánast alla. Ég er náttúrulega í fjarnámi í stærðfræði sem gerir það dálítið erfiðara.
En jæja, best að fara að gera eitthvað annað en að skrifa einhvern texta upp í tölvu...
Bless!
SB 
»
09.09.2007 10:53:41 / Sunna
»
18.08.2007 11:50:31 / Sunna
Fréttir segiði... Fréttir skulu það vera!  Króksmótið var á Sauðárkróki síðustu helgi. Magni fór með blönduð lið í 5. flokki C, 6. flokki B og 7. flokki C. Ég var náttúrulega ekki að keppa en það voru allir að fara með systkinum sínum og svona svo ég fékk far með Eddu og Sissa á laugardagsmorgninum. Svo gistum við Harpa og Karen saman í tjaldi sem Karen á um nóttina. Ég fór svo með Þorsteini og Gerðu heim. En þetta var mjög gaman, þó við hefðum sannarlega fengið að kynnast kuldanum..! Ég var að drepast úr kulda næstum allan tímann! 5. flokkur lenti í 6. sæti af ellefu liðum, 6. flokkur lenti í 12. sæti af fjórtán liðum og 7. flokkur tapaði ekki leik í riðlakeppninni, lenti í öðru sæti í riðlinum og spilaði við annað sætið í hinum riðlinum um þriðja sætið, en tapaði því miður þeim leik og lenti í fjórða sæti Þess má geta að Guðni spilaði alltaf með sjötta flokk og Aron var í útlöndum. Ef þeir hefðu verið í sjöunda flokks liðinu þá hefði það nú aldrei verið neðar en B. Í leiknum um 11.-12. sæti keppti sjötti flokkur við KA. KA komst yfir en svo jafnaði Björn beint úr aukaspyrnu. Leikurinn fór 1-1 og því þurfti að grípa til framlengingar. KA skoraði í henni og vann leikinn. En einhvern tíma í miðjum leiknum hljóp Baldvin upp allan kantinn, sólaði alla og fór framhjá markverðinum sem snerti hann eitthvað aðeins, en Baldvin var allavega kominn einn á móti marki og þá kallaði einhver strákur: „Hættu þessu, það er búið að flauta!“ Baldvin vissi ekki hvað hann átti að gera og hætti við að skjóta og þá náði einhver strákur af honum boltanum meðan hinn hljóp hlæjandi í burtu! Þvílíkt rugl Kvöldvakan var líka snilld. Björgvin Franz kom og skemmti Þvílíkur snillingur En já. Á fimmtudaginn fór unglingavinnan til Akureyrar í sund og á Greifann Það var þvílík snilld Það átti að vera á föstudaginn en þá var leikur hjá Magnastelpum svo það var ekki hægt. Um kvöldið var svo afmæli hjá Karen ;* Við Harpa gáfum henni fartölvutösku Í afmælinu átum við, horfðum á It's a boy/girl thing og So you think you can dance og fórum í pakkaleik og singstar Svo í miðju afmælinu hringdi síminn og Karen talaði mjög hissa í símann. Svo sagði hún: „Þetta var Fjóla. Hún sagði að Hvatarstelpur hafi ekki náð í lið og GÁFU leikinn! Við unnum 3-0! Og náðum öðru sætinu í riðlinum!“ Vá sko! Það er náttúrulega frábært en samt leiðinlegt að fá ekki að spila leikinn Við Harpa urðum eftir í afmælinu og gistum. Við horfðum á Vertical limit og fleira
Í gær var svo síðasti vinnudagurinn! Grenivíkurgleðin byrjaði líka Það var svaka stuð Og Harpa náði 19 kössum í kassaklifrinu! Aðeins tveir náðu meira held ég. Það voru Gunni og einhver annar. Ég náði nú 15 kössum
Svo heldur Grenivíkurgleðin áfram í dag Partý partý!  Jæja kæra fólk, er þetta ekki nóg fyrir ykkur? Jú, held það  Bless! Sunna rolla.
»
13.08.2007 22:39:49 / Sunna
Ætla að skella inn hérna myndum af nýju litlu sætu frænkum
mínum ;*

Völu og Kristinsdóttir 

Ég með hana 
Önnu Birnu og Raggadóttir 

Þetta er nú eitt það krúttlegasta sem ég hef séð..! 
Já, eins og sjá má eru þær mjög
sætar  Ekki amalegt að eignast tvær litlar sætar frænkur með 10
daga millibili! 1. og 11. ágúst  Svo á Einmitt Olla afmæli 20.
ágúst svo þetta passar vel
En ég blogga meira og set inn myndir seinna 
Sunna.

Jah, svona er útsýnið úr
Melgötu 10!
»
01.08.2007 20:06:57 / Sunna
»
20.07.2007 20:27:46 / Sunna
Jæja elsku rollurnar
mínar..!
Síðasta þriðjudag fór ég til Reykjavíkur
með mömmu, Eddu og Ollu bollu Edda var að fara að hitta Sigþór og
bauð okkur mömmu með. Hún var í íbúð en við mamma gistum bara hjá
Völu Það sem við gerðum var:
- Kringlan
- Smáralind
- Laugavegurinn
- Göngutúr
- Keyra um bæinn
- Egg (verslun)
- Fá okkur 50 króna ís!

- Horfa á sjónvarpið
- Éta hamborgara
Já! Þá er þetta nú mest komið sko..! Ég
keypti mér sokka, bol, peysu, skó, veski og svo gaf mamma mér stakk
í „afmælisgjöf“ Hún verður nú búin að gleyma því þá :')
Í Reykjavík býr líka fræga fólkið og er við keyrðum um götur
borgarinnar eitt kvöldið sáum við Einar Kárason á vappinu
og einn daginn er við keyrðum um götur borgarinnar sáum við engan
annan en Gísla Martein, hjólandi um á eldgömlu hjóli í
jakkafötum..!
Við keyrðum heim á fimmtudaginn og ég missti því miður af leik á
móti Neista á Hofsósi Það vantaði líka Júlíu og nokkrar fleiri,
stelpurnar voru bara átta, svo þær væru sennilega ekki að fara að
vinna 8-0 aftur. En þær redduðu þessu nú, unnu 3-0, Agnes með
þrennu Flott hjá þeim Svo er leikur á þriðjudaginn og svo langt
frí! Ekki aftur leikur fyrr en 17. ágúst!
Í dag var svo strandamót hjá sjöunda flokki. Magni fór með tvö lið,
annað í A og hitt í C. Þór var t.d. með 10 lið..! Eldra liðið vann
alla nema einn, á móti Þór 1 og yngra liðið tapaði einum, gerði
eitt jafntefli og vann hina held ég. Eftir mótið fórum við
Þorsteinn í bæinn, ég keypti mér takkaskó, við fengum okkur að
borða og keyptum nammi.
En já, að lokum kemur svo smá sönnun fyrir því að sumt
fólk getur misst sig með myndavél í hönd..!

Haha! :'D Þessi krakki er
snillingur ;* Tek það fram að þetta eru alls ekki allar myndirnar
sem hún tók þennan dag
Nú kemur Harpa í nokkrum útgáfum 
Jáhh... Og ekki má gleyma mér

Ís
er góður!
Sunna
Björnsdóttir
»
14.07.2007 12:55:19 / Sunna
Af einhverjum ástæðum hef
ég ákveðið að setjast hér niður og blogga blogg.
Lífið gengur sinn vanagang
hér á Grenivík. Engin vinna í síðustu viku. Sumir myndu nú nýta það
til að sofa út en nei, ekki ég. Ég vakna korter yfir níu til að
horfa á sjónvarpið! Fyrst fer ég inn í
eldhús og opna ísskápinn. Tek þar lýsi út, set það á bekkinn. Opna
skúffu, næ þar í skeið, loka skúffunni. Opna lýsisflöskuna, helli
lýsi í skeiðina, sting skeiðinni upp í mig og kyngi lýsinu. Skrúfa
tappann aftur á flöskuna, opna ísskápinn, set flöskuna þar inn, tek
út súrmjólkurfernu. Set fernuna á bekkinn og opna skáp. Næ
í fallega Pocahantas skál úr skápnum, set hana á bekkinn
og loka skápnum. Opna súrmjólkurfernuna, helli súrmjólkinni í
skálina, loka fernunni og set hana inn í ísskápinn. Loka svo
ísskápnum. Opna annan skáp, tek sykurinn út. Dreifi sykri út á
súrmjólkina, set sykurinn aftur upp í skáp og loka. Tek upp
skeiðina, hræri sykurinn. Fer inn í búr og næ í Cheeriospakkann.
Labba með Cheeriospakkann að súrmjólkurskálinni. Opna
Cheeriospakkann og helli Cheeriosi í skálina. Loka
Cheeriospakkanum og fer með hann inn í búr. Kem aftur, tek upp
skálina, labba með hana inn í stofu, set hana á stofuborðið, færi
sófastól að borðinu og byrja að éta þetta unaðslega Cheerios!
  
Í leiðinni horfi ég á Serbonito no basta
Þvílíkir snilldarþættir Á eftir þeim byrjar svo Grey's anatomy
Þó maður sé búinn að sjá alla þessa þætti áður (Þetta er
endursýning) þá getur maður alveg horft á þá Á eftir Grey's
anatomy byrja svo snilldarþættirnir Fresh prince of bel air með
Will Smith ungum í fararbroddi Snilldar húmor í þessum þáttum Á
eftir því er svo sjálfstætt fólk en maður nennir ekkert að horfa á
það, enda klukkan orðin hálf tólf og maður þarf að fara að huga að
hádegismat
Já, svona voru morgnarnir í
síðustu viku En hvernig var restin af deginum? Ég get allavega
sagt ykkur það að síðasta laugardag, semsagt fyrir viku fórum við
Harpa og Karen allar í bæinn, reyndar í sitthvoru lagi. Við ákváðum
að leigja mynd til að horfa á um kvöldið. Harpa og Karen fóru í
vídeóleigu og leigðu;

Snilldar mynd þar á ferð Hlógum
mikið og átum mikið nammi Ég gerði svo ekkert sérstakt nema á
þriðjudaginn. Þá var leikur á Grenivík á móti Tindastól.
Fyrri hálfleik spiluðum við á móti vindi. Við fengum ekki margar
sóknir en vörnin stóð sig sem og Auður sem varði mjög vel og einu
sinni meistaralega Samt sem áður skoruðu Tindastólsstelpur eitt
mark.
Seinni hálfleikur gekk betur í sókninni enda vorum við með vindi.
Við sköpuðum okkur færi en náðum ekki að skora. Þá var eins og við
gleymdum aðeins vörninni og Tindastóll náði að skora fjögur mörk..!
Þegar lítið var eftir ákvað ég hinsvegar að skjóta á markið dálítið
langt frá. Ég skaut beint á markvörðinn en hann beygði sig niður og
sló boltann yfir sig! Þannig að það var huggun að ná að skora En
lokatölur 5-1. Þess má geta að það vantaði Karen, aðal
varnarmanninn okkar..! Næsti leikur er svo á mánudaginn
við Hvöt, hér á Grenivík. Á
miðvikudaginn var svo bikarmót fyrir 13-16 ára á Laugum. Magni fór
með eitt lið. Okkur gekk frekar vel, unnum tvo leiki, gerðum fjögur
jafntefli og töpuðum bara einum. Lentum í fjórða sæti, aðeins einu
stigi á eftir liðinu í þriðja sæti Svekk, en svona er
þetta.
Í gær fór ég svo í bæinn, keypti mér
gallabuxur og mjög töff Pumabol
Núna eru Karen og Harpa
á Borgarnesi, klæddar í íþróttatopp og þröngar stuttbuxur að
keppa á meistaramóti í frjálsum fyrir 12-14 ára Reyndar
ásamt Jakobi og Matthildi. Harpa keppir í langstökki en Karen
í langstökki, 100 m hlaupi og boðhlaupi. Vonandi gengur þeim
sem best
Ég er svo að fara til Reykjavíkur á þriðjudaginn Fer með
Eddu, mömmu og Ollu Kem aftur á fimmtudaginn, beint á leik á
Hofsósi við Neista Gaman að því Svo styttist í það að móðir mín Ólína fari hvorki
meira né minna en til Spánar! Hún fer fjórða ágúst og
kemur heim þrettánda held ég. Hvað gerir maður þegar
móðir manns fer í burtu í NÍU daga!?? Á maður að halda partý?
Ég ætla allavega að nýta þetta til að fá leyfi til að gera allt,
því móðir mín Ólína er mun strangari en faðir minn Björn sem
hefur í raun lítið að segja þegar móðir mín Ólína er heima. En nú
fer hún og þá verð ég sjálfkrafa mun frjálsari einstaklingur Því
ekki á ég að hringja til Spánar til að fá leyfi til einhvers
Neineinei Svo er faðir minn Björn líka oft að brasa eitthvað,
fara eitthvað og svona. Þá verð ég ein heima En ég er hætt að
pæla svona, enda er þetta blogg orðið mjög langt og allir búnir að
gefast upp á að lesa þetta allt Ein frétt í viðbót Ég er orðinn nörd í
Tetris í digital Ísland Metið mitt er 2020 stig! Ég verð
alltaf nörd í svona rugli
En já... uuuu....
Bless! 
Sunna Björnsdóttir, Ingólfssonar, Benediktssonar.
»
06.07.2007 10:50:33 / Sunna
»
11.06.2007 19:48:54 / Sunna
»
29.05.2007 20:32:20 / Sunna
»
22.05.2007 21:44:02 / Sunna
Kæra fólk! Ég nenni ekki að blogga
en það er víst alveg nauðsynlegt í þessu samfélagi sem við
lifum og hrærumst í
Já, við í 8.-10. bekk fórum í
sumarbústaðaferð um helgina í Ytrivík sem var algjör snilld Þar
gerðum við ýmislegt, grilluðum, átum nammi, spiluðum, fórum í
pottinn og gufu og fleiri snilldarhluti Já, og á leiðinni í
Ytrivík stoppuðum við á Glerártorgi þar sem 8. bekkur gerði
heimspekigjörninginn sinn Það var snilldin ein Hoppuðu þarna um
eins og apar, spurðu fólk hvað ást væri og hvaðeina! Verst að fá
ekki að vera með
Prófadagur í dag og á morgun. Náttúrufræði
í dag, gekk svona glimrandi vel Svo fórum við í sund og heim
til Siggu Haralds þar sem við fengum djöflatertu og fleira
gómsæti Á morgun er svo íslenska.
Ég get ekki beðið eftir að stelpurnar
fermist! En fyrir þá sem ekki vita þá gerist það á sunnudaginn! Ég
get bara ekki beðið eftir að gefa þeim
fermingargjafirnar
En hér sit ég, hlusta á hið frábæra lag
Remember tomorrow í iTunes meðan ég hleð I-podinn Já, það er sko
gaman að eiga I-pod Mæli með því fyrir alla
Svona í tilefni af því að ég er að fara í
íslenskupróf þá ætla ég að koma með eitt örlítið atriði.
Spá í ÞAÐ! Ekki spá í
því!
Ógeðslega margir sem segjast spá
í því! Oj! Ég fæ bara hroll! Það hefur einhver maður sagt þetta
óvart og svo hafa bara allir hermt eftir honum! Ekki láta svona smá
mistök breyta málinu okkar!
Jæja, nenni ekki að blogga
meira
Sunna
Björnsdóttir
Friður
byrjar með brosi
Móðir Teresa
»
09.05.2007 20:46:18 / Sunna
Núna ætla ég að vera alveg rosalega
væmin. Þið ráðið hvort þið lesið þetta eða ekki, ég ætla bara að
skrifa þetta og gá hvort að þið eruð sammála mér.
Vinir.
Að eiga vini eru forréttindi sem
allir ættu að fá að njóta. Nánast allir eiga
einhverja vini, allt frá einum upp í marga tugi. En ekki
allir. Sumir eru alltaf einir og eiga jafnvel enga fjölskyldu og
þurfa að berjast í gegnum lífið einir á báti. Það fær okkur hin til
að hugsa hversu heppin við erum, að eiga vini sem við getum treyst,
talað við, sem skilja okkur og geta hjálpað manni í gegnum
erfiðleika. Og að sjálfsögðu til að flippa með  Ég held
að það sé betra að eiga fáa góða og nána vini en marga
sæmilega vini. Það er ekki allt að vera ofurvinsæll, heldur er
málið að sætta sig við það sem maður hefur, það er oftast alveg
nógu gott. Sumir gera ýmislegt til að afla sér vina, jafnvel
eitthvað ólöglegt eða hvað sem er, sem þeir halda að öðrum finnist
töff. Svoleiðis vinskapur endist ekki lengi, að ég held. Það er
langbest að vera bara maður sjálfur, þá fyrst getur maður verið
alveg viss að vinir manns séu sannir vinir. Ég held að það séu fáir
vinir sem rífast aldrei eða eru aldrei ósammála. Sannir vinir eru
þeir sem biðjast fyrirgefningar og halda áfram að vera vinir þó
eitthvað hafi komið fyrir.
Ekki reyna að breyta þér í einhvern
annan, heldur skaltu finna kosti þín og rækta þá.
Vinir eru þeir sem elska kosti þína og sætta sig við
ókostina.

Hér er eitt dæmi <3 <3 <3 <3
Með bestu kveðjum,
Sunna.
»
02.05.2007 19:40:42 / Sunna
Kæra
fólk!
Ég gæti bloggað um....
Að 10. bekkur byrjaði í samrændu prófunum
í dag...
Að ég fer í tvö stærðfræðipróf á
mánudaginn...
Að ég fer til Reykjavíkur um
helgina...
Og Katla fer með...
Að ég sé með æði fyrir
þessu lagi...
Að ef það ætti að hengja einhvern þá væri
það Bush...
Hvað mér finnst Heroes og Jericho góðir
þættir...
Hvað mér finnst mikið svekkelsi að Líney
er eina stelpan sem ég veit að horfir á Heroes...
Að ég veit ekki um neinn sem horfir á
Jericho...
Að mig langar að verða
lítil aftur...
Að ég kvíði fyrir því að fara í
framhaldsskóla...
Hvað ég pæli mikið í öllu...
Að orðið „endalaust“ fær mig alltaf til að
hugsa um eitthvað slæmt...
Hvað ristað eggjabrauð er
gott...
Að það er innsláttarvilla í bókinni Englar
alheimsins á blaðsíðu 38...
Að við Harpa og Karen sáum Steingrím J. í
bænum um daginn...
Að ég er að setja inn myndir á
www.blog.central.is/sunharp akkurat núna...
Að það sé mjög ólíklegt að ég klári það
núna....
EN! Ég ég nenni því
ekki.
Virðingarfyllst,
Sunna
Björnsdóttir.
»
27.04.2007 22:47:21 / Sunna
»
Síður: 1 2 3
|
|